ÆVINTÝRAHEIMUR ÁGÚSTU
Kvikmyndirnar okkar
11.09.2006 17:50:27 / gustan

Komin með barnalandssíðu

Jæja þá er mar bara komin með þessa fínu barnalandssíðu, slóðin er :  http://barnaland.is/barn/50916   en hún heitir ÁgústuogGuðlaugsbarn.  Leyniorðið er landið sem ég bjó í fyrstu 6 manuðina af meðgöngunni ,,,,,,  

Ég er búin að setja inn slatta af myndum og skrifa eina smá færslu í vefdagbókina ( svona til að prufa)  þannig að nú ætti ég að vera orðin nógu klár í þessu til að vera snögg að setja inn myndir og fréttir  um leið og litla kemur í heiminn. En endilega fylgist með því nú er svooo stutt í að við fáum litlu prinsessuna í fangið :haha:  heyrumst siðar bestu kveðjur gusta


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 22:26:52 / gustan

BARA 10 DAGAR Í ÁÆTLAÐAN KOMUTÍMA

:haha: Hæ hæ kæru vinir, þið verðiið bara að afsaka hvað ég skrifa lítið hingað inn núna. Við Gulli erum loksins flutt inn í nýju fínu íbúðina okkar hér á Djúpavogi og erum því miður ekki komin með netið þar, þannig að því miður er ég ekki jafn dugleg og ég vildi vera í að setja inn færslur og myndir eins og mig langar :(   og svo er ég bara búin að hafa það svo gott í að dunda mér í að gera allt fínt hjá okkur að ég hef ekki komið mikið hingað ( til systir Guðlaugs ) að nota netið lengi, en nú erum við að verða búin að taka upp úr öllum kössum og raða öllu voða fínt og kósí svo kannski fer ég að reyna að komast á netið meira.   Það er alveg frábært að vera komin með eigin íbúð og okkur líður rosa vel þarna. Þannig að nú má lilta prinsessan okkar bara fara að koma í heiminn, nú eru bara 10 dagar í settan dag og við erum orðin svooooo spennt að við hugsum varla um annað, það verður svo magnað að fá litla krílið loksins í fangið :haha: :haha: við stefnum á að fara til reykjavíkru núna í þessari viku, í kringum 15. sept sem er á föstudaginn. Svo kemur bara í ljos hvað litla lætur bíða lengi eftri sér,, ég vona að hun se jafn óþolinmóð og ég, og skjótist í heiminn sem fyrst.

En ég er nú samt alveg poll róleg enn sem komið er, og hun má alveg lata okkur bið a aðeins eftir ser,  ég hef það svo rosa gott, heilsan er búin að vera alveg tipp topp og nýt þess bara að vera í fríi og hafa það gott, það er eflaust langt þar til mar hefur svona góðann tíma ut af fyrir sig aftur á næstunni :D Við gulli njotum þess bara að vera í honnímoon og hafa það gott.... bumban er orðin svaka stor og litla er svo dugleg að hreyfa sig, dúndra í rifbeinin á mér og boxa í pissublöðruna á mér,,  ( það er alltaf meiriháttar að finna fyrir henni en mikið óskaplega hlakkar mig til að þurfa ekki að vakna á klukkutíma fresti til að pissa ;)  Við erum búin að vera dugleg að taka bumbumyndir og nu verð ég bara að fara að vera dugleg að setja þær á netið.     Jæja eg ætla ekki að hafa þetta lengur í bili og vona að eg skrifi mjög fljótt aftur, hafið það gott og munið að ef þið eigið leið um djupavog þá verðiði að kikja í kaffi :haha:      heyrumst bestu kveðjur


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 18:21:45 / gustan

MIKIÐ AÐ GERAST

Hæ hæ voða langt síðan ég skrifaði síðast en ætla að skella inn einni laufléttri færslu svona ef það skildu einhverjir enn vera að kíkja hérna inn :D  Það er allt ljomandi gott að frétta og ég er enn bara svona svífandi um á bleiku skýji yfir að vera komin heim og hef það rosalega gott, bumban stækkar og stækkar og litla skvísan er alltaf á hreyfingu sem er náttúrulega æðislegt.

Bestu fréttirnar að sinni eru nú samt þær að við erum loksins búin að fá þak yfir höfuðin á okkur næstu mánuðina. Ákváðum að bíða alveg með að kaupa hús strax, úr því að það var bara ekkert í boði sem okkur leist á en erum þó enn að skoða og tilbúin að hoppa á gott hús ef eitthvað verður til sölu á Hornafirði á næstunni. En þangað til ætlum við að leygja okkur íbúð hér á Djúpavogi og mér líst bara vel á það. Íbúðin er bara kjög fín, með einu svefnherbergi, saumaherbergi, stóru baðherbergi, þvottahúsi, forstofu og samfastri stofu og eldhúsi, ég er alveg viss um að við eigum eftir að koma okkur vel fyrir þarna og hafa það gott ( ég er að sjálfsögðu búin að innrétta allt frá A-Ö í huganum ) en við fáum nú samt ekki íbúiðna fyrr en eftir verslunarmannahelgi, en ég er alveg ótrúælega spennt að fá loksins eitthvað út af fyrir okkur og ánægð að vera bara hérna hjá honum Gulla á næstu mánuðum, enda búin að vera meira en nóg í burtu frá honum á þessu ári.

Við ætlum til reykjavíkur á morgun, stefnan er að koma dótinu okkar sem við eigum í Hafnarfirði á flutningabíl fyrir helgi og að kaupa okkur "fjölskyldubíl" Vona að það gangi betur að finna hann en draumahúsnæðið... okkur er farið að líða svolítið eins og Juliu Roberts í Pretty Woman, þegar hún ætlaði að kaupa sér föt en enginn vildi afgreiða hana,,, eitthvað allra sorglegasta atriði í kvikmyndasögunni... Og nú viljum við kaupa hus og bíl og finnum ekkert :|   En ég held nú samt að þetta sé allt að smella saman. Ef við verðum búin að öllu í reykjavík fyrir helgi langar okkur að fara í útilegu eða eitthvað í smá ferðalag,,,,

Við fórum nú í smá ferðalag um miðjan júlí, vorum eina nótt í reykjavík og svo eina á Laugarvatni. En þau hjónin Árdís og Ingó héldu þessa fínu síðbúnu brúðkaupsveislu einhversstaðar í uppsveitum Árnessýslu ( man engin nöfn en mundi sko rata þangað með lokuð augun ) þrátt fyrir aftaka veður var þetta alveg æðislegt og eftir að mar var komin í lopapeysu og vaðstígvel var þetta bara allt eins gott og hægt var að óska sér held ég maturinn frábær og bara allt meiriháttar. Það var æðilsegt að hitta alla sem voru í veislunni og ég vil bara þakka þeim hjónum aftur fyrir mig :D  daginn eftri veisluna var komið fínasta veður og við Guðlaugur túristuðumst aðeins um þetta svæði sýndum litla krílinu Geysi og sitthvað fleira. ég varð svo eftir á Hornafirði eftir þessa helgi en Gulli fór á djúpa á sjó, hann kom þó mikið á Höfn fyrst til að krossfesta og steggja Kalla frænda og síðan helgina á eftir var brúðkaup þeirra Kalla og Nínu. Það var í lóninu og var líka alveg fullkomið í alla staði. Ég hef sjaldan hlegið jafn mikið og yfir skemmtiatriðunum í veislunni og litla skvísan hreyfði sig svo mikið og  hefur eiginlega verið á útopnu síðan, hún kann greinilega vel vid sig í svona partýum :haha:   Og vil ég líka bara þakka Nínu og Kalla fyrir æðislegan dag :D 

En nú held ég að þetta sé orðið gott í bili hafið það ölll sömul gott og munið að keyra varlega um verslunarmannahelgina og skemmta ykkur vel,,, og já það væri ekki leiðinlegt ef þið mynduð skrifa í commentin hvert leiðin liggur um versló,, og aldrei að vita nema við hittumst :D  hafið það gott, kveðja gusta og litla partý gellan


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 17:51:17 / gustan

GOTT AÐ VERA KOMIN HEIM

Jæja kæru vinir nú er vika síðan ég kom heim, og ég get ekki líst því hvað er gott að vera komin hingað. Við mamma og Hildur vorum í 3 daga í algjörri afslöppun á eyjunni Capri fyri utna Napoli i 3 daga áður en ég kom heim það var æðislegt, svo vorum við eina nótt í Róm sem var frekar ömurlegt, svo ógeðslega heitt að við gátumekki sofið og ég var bara orðin alveg viðþolslaus og óþolinmóð að komast heim, flugferðin heim gekk svo eins og í sögu og ég og mamma ( ég ) keyrði svo á höfn daginn eftir og það gekk líka ljómandi vel, Guðlaugur kom og hitti mig á Höfn og síðan þá erum við eiginlega bara búin að vera 3 ein í heiminum, litla fjölskyldan :haha: Og ég er búin að hafa það svo gott að það er alveg ólýsanlegt, erum búin að fara í lónið og hafa það gott og svo vorum við að sjalfsögðu á Humarhátíð, en þó bara á laugardeginum og tókum því ótrúlega rólega, mér leið svolítið eins og ég væri orðin rosa fullorðin þegar við Gulli röltum niður á bryggju með bumbuna og dimmu litlu með okkur, en bara ótrúelga gaman. við vorum svo róleg að við misstum t.d af brennunni og öllu á laugardagskvöldinu, því við sofnuðum strax eftir mat, en það er þó ekkert öðruvísi en undanfarin ár en þá hef ég oftast "lagt" mig aðeins fyrir ballið á laugardagskvöldinu (en það hefur þó oftast af annarri ástæðu en núna í ár) en ég vaknaði þó um miðnætti núna ( eins og í fyrra ) og dreif mig niður á bryggju og kíkti á lífið, fór þó ekki á ball eins og undanfarin ár, en það var bara út af því að ég ætla aldrei í lífinu aftur á ball með á móti sól , því þeir eru ömurlegir og það er líka búið að tæma "sundlaugina" mína fyrir framan íþróttahúsið þar sem við Helga Vala vorum vanar að leika okkur í eftir ball..... og hvar eigum við núna að kæla okkur niður  !!!!!!! eins gott að nýja sundlaugin verði opin eftir böllin í íþróttahúsinu :D.

Við fórum í mæðraskoðun áðan og allt leit fullkomlega út alveg eins og það á að gera blóðþrýstingur og annað hjá mér í rosa góðu lagi, samt er blóðið í mér ekki eins gott og það á að vera ( er 103 en á að vera 120 ) þannig að nú verð ég að vera dugleg að borða slátur, lifur , kæfu og þess háttar mat því ég ætla að vera komin með 120 í næstu skoðun ;)  Litla prinsessan er stór og dugleg, aðeins yfir meðallagi í stærð miðað við bumbustærð og sparkar kröftuglega og stundar fimleika af fullum krafti inn í bumbunni. Allt eins og það á að vera,,, Jæja en ég ætlaði nú bara aðeins að láta vita af mér og mínum, á kannski eftir að vera aðeins löt við að skrifa hérna á næstunni en er þó alls ekki hætt að blogga, þannig að þið haldið vonandi áfram að kíkja hingað inn. hafið það gott bestu kveðjur Ágústa og prinsessan


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 13:44:09 / gustan

bara 5 dagar eftir

jaeja nu eru bara 5 dagar eftir :haha: , mamma og hildur komu til min i gaer og nu erum vid ad turistast um borgina, eg er to a internet kaffi nuna ad reyna ad ganga fra hotel pontun svo vid getum farid til eyjunnar capri a morgun, tvi okkur langar svo ad fara eitthvad i rolegheit og liggja i solbadi og hafa tad gott, langadi bara adeins ad lata vita ef mer, hlakka mikid til ad koma heim og gudlaugur, mig hlakkar svo til ad sja tig nu er aldeilis stutt, eftir sem betur fer, eg elska tig fallegi minn. :D  

jaeja hafid tad gott sjaumst eftir nokkra daga bestu kvedjur gusta og bumban


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 16:14:49 / gustan

DIABLOS

Ég var að láta framkalla myndir fyrir mig af einnota vél sem ég hef átt í 11 og hálfan mánuð eða síðan á Humarhátíð 2005. Því miður var ekki hægt að setja myndirnar á disk, en þær eru bara svo skemmtielgar að ég tók mynd af tveim myndum til að sína ykkur smá hvað við erum flottar.  Myndirnar eru þar að leiðandi í mjög lélegum gæðum. og því miður sjást ekki mikil svipbrigði á okkur en búningarnir sjást og ég veit að um leið og hinir púkarnir sjá þessa mynd fá þær flassback og fiðring í magann það var svo gaman hjá okkur :haha: 

Svo kem ég að sjálfsögðu heim með hinar myndirnar og sýni ykkur, þær eru magnaðar alveg eins og við :klikk:   bestu púka kveðjur Gústa og litli engillinn


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 19:30:45 / gustan

"OG ÞÁ KOM BRÆLA"- SKEMMTILEG DÆMISAGA....

Sæl verið þið öllsömul, mig langar til að benda á nýja skoðunakönnun hér til hliðar og það skiptir mjög miklu máli að þið svarið eftir allra bestu getu. Svo í framhaldi af því eftir nokkra daga ætla ég að segja ykkur hvernig tilfinningu ég hef fyrir þessu litla kríli og ég hef sko sterkar tilfinningar um það. en hef þó ekki hugmynd um hvort það sé eitthvað að marka eða hvort móðureðlið sé svona sterkt hjá mér :D og þið mættuð líka gera enn betur og commenta svolitið um það hvernig þið sjáið krílið fyrir ykkur, bara svona til gamans, því ég hugsa ekki um neitt annað en þennan litla unga........

jaaaa og þó, það er nú kannski smá ýkt því undanfarna daga hef ég verið að læra og læra og reyna að klára allt sem ég get áður en ég kem heim, og ég held bara svei mér þá að þetta sé allt að smella... Á að vera með kynninguna mína á music - opera verkefninu mínu á fimmtudaginn eftir viku og það líst mér rosa vel á því þá geta mamma og Hildur komið og séð. En þær koma hingað á miðvikudaginn eftir 6 daga jejjeiiejeiieii :haha:  og svo þriðjudaginn 27. júni munum við mæðgurnar 4 lenda í Keflavík,,,,, jeddúdd hvað ég er orðin spennt að fá þær og að koma heim, þó mér finnist ég hafa verið svo stutt hér og stutt síðan ég var á Íslandi.

En er nú samt búin að vera í 1 og 1/2 mánuð frá Gulla núna og það er bara svona einum og hálfum mánuði of langt. Við erum sem sagt búin að slá Stebba Óla og Ástu Sveinbjörns út. En pabbi var vanur að segja mér sögu þegar við vorum saman á sjó á Garðey. En þá var ég mjög oft alveg að fara á líningunum úr leiðindum og söknuði og vildi bara komast heim til Gulla. Oftar en ekki fór ég upp í brú til pabba og reyndi með öllum ráðum og jafnvel hótunum að fá hann til að fara í land. Þá sagði hann mér alltaf sögu um það að þegar Ásta og Stebbi voru að byrja saman var Stebbi á nótabát og var einu sinni úti í meira en 40 daga. Ásta var síðan spurð hvort þetta hafi ekki verið erfitt eða leiðinlegt og hún svaraði svona mjög jákvæð " jú jú en, en svo kom bræla"  Með þessu vildi pabbi benda mér á að það kæmi alltaf bræla öðru hvoru og þá fengi ég að hitta Gulla. Ég man ekki til þess að þetta hafi róað mig neitt sérstaklega, en miðað við hvað Ásta og Stebbi eru búin að vera lengi hjón, þá er þetta örugglega mjög góðs viti. Við Gulli erum sem sagt búin að ná þeim,,,en mikið er ég fegin að "brælan" okkar sé að koma. Pabbi eyðilegði þetta nú að vísu alveg með því að reyna að koma með aðra upplífgandi dæmisögu þegar ég var heima um páskana en þá sagði hann        "fólk var nú í festum í upp undir 3 ár í gamla daga"   neiiiii,,, það er nú ekki að fara að gerast hjá okkur, þetta er meira en nóg ;)

Og geri ég hér með skriflegt loforð um að það muni aldrei líða næstum því svona langur tími á milli þess sm við hittumst ( helst ekki meira en nokkrir tímar ) og þið eruð öll vottar.. :D

Fór nett pirruð eftir skóla í gær að kaupa eitthvað drasl sem mig vantaði í tösku ( en málið er að það er alltaf verið að senda okkur þvers og kruss til að kaupa eitthvað rándýrt drasl ) og mér finnst mikið skipulagsleysi að geta ekki sagt manni þetta allt í byrjun svo mar geti eitt einum degi í þetta en ekki 7 dögum :frown:   Þett var líka búin að vera langur og erfiður dagur, svo ég var ekki í mínu besta skapi ........ og hvað er betra að gera þegar manni líður ílla en að versla ????' Ekkert,,,,,, það lætur mér allavega lltaf líða betur. Og á leiðinni heim labbaði ég fram hjá rosa flottri búð missti mig aðeins og keypti jólaföt á litlu snúlluna, ´prinsessukjól, litla skó með perlum og sokka í stíl og ekki nóg með það þá keypti lík náttslopp handa henni, fyrir þegar hún verður eins árs og svona byrjuð að standa og svoleiðis og hann er svo fallegur með blúndum og dúlleríi. Mikið ofsalega leið mér vel á eftir :haha: Og nú er ég alltaf að opna kassann sem þetta er í og skoða ,,,, ummmmm hvað þetta er gaman

Mig langar mjög mikið að monta mig af honum stebba bróðir því ég er mjög stolt af honum og langar að óska honum til hamingju með útskriftina í gær, en eins og flestir vita er hann í Hótel og veitinga skóla í Sviss í gær var útskrift hjá honum og námið búið, en svo gerir hann lokaritgerð í ágúst og útskrifast þá aftur sem " master in turist and hotel management" ( vona að þetta sé rétt hjá mér ) Allavega er ég ánægð með strákinn og læt því fylgja myndir af honum og pabba því þeir eru báðir svo sætir :haha:

og af því að mamma er líka svo sæt þá get ég ekki annað en sett líka mynd af henni og fallegu strákunum hennar,, myndirnar voru teknar um páska í fyrr á Canary

En nú er best að snúa sér að lærdómnum , munið að takak þátt í skoðunarkönnunninni og hafið það gott, besstu kveðjur Gusta og snúllan


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 22:56:18 / gustan

TIL HAMINGJU SJÓMENN OG HAFMEYJUR

Jæja, þá er hinni árlegu sjómannadagshelgi að ljúka, hún var hin allra rólegasta hjá mér en ég er eiginlega búin að læra síðan ég man ekki hvenær. Sat í meira en 12 tíma í gær og hannaði og litaði skó og töskur og annað eins í dag. En það er nú bara gaman, og ég er mjög ánægð með það sem ég er komin með. En þetta er partur af stóra verkefninu sem við erum að gera núna og áttum að skila á fimmtudaginn næsta, En kennarinn okkar er svo veik og búin að vera rúmliggjandi í viku og því vitum við ekki alveg hvenær skiladagurinn er, ágætt að fá lengri tíma en Guð hvað mig hlakkar til þegar þetta verður búið. ;)

En eins og ég segi þá var þetta rólegasta sjómannadagshelgi sem ég hef nokkurtíma upplifað, og ég hugsa að þetta sé sú fyrsta í um 15 ár sem ég er edrú, það er nú ágætt af svona kornungri manneskju eins og ég er nú. En ó brother hvað mikið af þessum helgum hafa verið skemmtilegar og eftirminnilegar. Alltaf svo mikið að gerast og mikið stuð. Ég get nú viðurkennt að mig langaði svolítið að vera í íþróttahúsinu í gær, trúi að það hafi verið mikið, mikið stuð. Eitt af því sem ég sakna mest við að fara ekki reglulega út á lífið, er að dressa mig aldrei upp, þó ég hafi farið út að borða og svona hérna, þá hef ég lítið verið að fara í mitt allra fínasta púss og hef ekki gengið í háhæluðum skóm síðan ég kom hingað, því þá fjórfaldast lappirnar á mér við bjúg.

Mér finnst  bumban er orðin svo stór og útstæð að stundum fer ég bara að hlægja þegar ég labba fram hjá spegli. Mér finnst hún samt rosalega falleg og finnst gaman að horfa á hana,  en stundum líður mér samt eins og ég sé litið tröll með risa kálfa, risa brjóst og risa bumbu. Það er aðallega þegar ég er orðin rosa þreytt og kjaga um :D

Prinsessan er núna dugleg að láta mig vita af sér á hverjum degi, aðallega samt á kvöldin þegar ég er að fara að sofa. Og ég er farin að hallast að því að hún sé með dans áhugann frá mér, og ég er viss um að hún hafi verið að æfa stepp dans í gærkvöldi, allavega voru alveg ótrúlega sniðugar hreyfingar og mér kitlaði svo innan í maganum að ég gat varla sofnað, lá hér í rúminu mínu og hló eins og bjáni, þetta er alveg ótrúlega gaman. Og sem betur fer styttist hratt í að komi heim og við Guðlaugur getum legið saman og hlegið af þessu öllu saman. :haha: En jæja best að fara að sofa núna, hafið það gott kær kveðja Gústa og litli spriklarinn


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 10:09:16 / gustan

HVAÐ Á MAÐUR AÐ SKÍRA BARNIÐ- EÐA EKKI SKÝRA !!!!

 Tók þessa skemmtilega sögu af bloggsíðunni hans Snorra Freys bróðir hennar Árdísar - http://folk.is/snorri_619/

Verður þetta svona ?

 Bekkjarafmælið.


 Ósk- Ýr gekk rösklega með Brand- Ara í afmælið til Egils-Daða því hún var

 að verða of sein að sækja Leif- Arnar og Loft- Stein í leikskólann.

 Borgar- Vörður, pabbi Egils- Daða, tók á móti þeim.

 Þarna voru Lind- Ýr, Líf- Vera, Sól- Hlíf og Hreinn- Bolli.

 Erlendur- Hreimur kom blaðskellandi innan úr stofunni og vinkonurnar
 Vísa- Skuld og Dís- Ester fast á hæla honum.

 Mýra- Þoka lét lítið fyrir sér fara úti í horni.

 Innan úr herbergi Egils- Daða bárust ógurlegir skruðningar -
 "#%=&#$&/(=!z#$!/!=!
 Línus- Gauti, Barði- Vagn og Mist- Eik voru greinilega mætt. En hvar var
 Ríta- Lín?

 Fyrir utan var Sædís- Hlíf í rauðum fólksvagni.

 Hægt og sígandi nálgaðist Jökla- Þoka eftir stígnum.

 Hún var orðin alltof sein í afmælið. :haha:
bestu kveðjur Gústa og litla prinsessan

       

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 20:07:26 / gustan

MUNURINN Á ÍTÖLUM OG EVRÓPUBÚUM

HAHAHA Guðlaugur fann þetta fyndna myndbrot á netinu og sendi mér það,  en þetta lýsir Ítölum eins vel og hægt er á skemmtilegann hátt. Ég hef nú reynt eftir mestu og bestu getu að láta Ítali og allt Ítalskt ekki fara í taugarnar á mér, en ég get lofað ykkur að það kostar gríðarlegt jafnaðargeð og umburðarlindi. Því að mínu mati eru Ítalir þröngsýnir hálfvitar ( held að ég hafi kannski sagt það einu sinni eða tvisvar hérna áður ) og ég er greinilega ekki ein um það. En ef ég ætlaði að kvarta yfir öllu hálfvitalegu sem þessir hálfvitar gera þá myndi ég ekki gera neitt annað en að kvarta og kveina allann daginn og þessi síða yrði full af blótsyrðum og neikvæðni. Til að koma ykkur sem heima sitið í skilning um lífið hér, þá er hér eitt lítið dæmi : Ég hef tekið það sérstaklega fram við gestina sem koma til mín að umferðaljós og gangbrautir hér skipta engu máli what so ever, Ef þú vilt komast yfir götu þá er það undir þér komið að horfa til beggja hliða, hlusta, bíða eftir að það komi enginn bíll og hlaupa svo eins og skrattinn sé á hælum þér yfir ,og biðja til Guðs í leiðinni að það komi enginn og keyri yfir þig,, og þið getið séð á myndbrotinu af hverju. Þeir sem hafa komið hingað, sérstaklega til Róm vita að þetta er ekki ýkt, þetta er einfaldlega svona.  góða skemmtun, myndbrotið er í pínu stund að loadast inn en vel þess virði að bíða og sjá það...

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=169518

bestu kveðjur Gústa og bumbu prinsessan


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 01:14:36 / gustan

LÍFIÐ ER YNDISLEGT

Jæja elskurnar mínar, ég verð að byrja á því að þakka fyrir öll fallegu kvittin sem ég hef fengið frá ykkur, sérstaklega síðan um páska en þá hef ég verið að fá margar hamingjuóskir með óléttuna og fallegar kveðjur um hvað sé gott og gaman hvað allt gangi vel hjá okkur,, það er ótrúlega gaman að heyra svona frá ykkur öllum  og gaman að sjá hverjir kíkja á síðuna,  og því vil ég þakka ykkur enn og aftur :D

En nú var hinni árlegu Hvítasunnuhelgi að ljúka og af því tilefni er ég mikið búin að hugsa til einnar af eftirminnilegustu Hvítasunnuhelgar sem ég hef upplifað, en það var fyrir 4 árum þegar ég og æskufélagar mínir úr samtökunum "78 héldum upp á 10 ára fermingarafmæli. Það var meiriháttar helgi. Svo meiriháttar að við ákváðum að halda upp á þennan stórkostlega viðburð á 5 ára fresti í stað 10 ára, og er ég því að sjálfsögðu farin að plana 15 ára fermingarafmælið sem verður á næsta ári :haha:  Alveg einkennilegt hvað þetta er há tala 15 ár miðað við hvað við erum öll ung,,, eiginlega bara rétt skriðin yfir tvítugt en samt ekki langt í að við verðum þrítug :haha: Verðum 28 ára í ár, sumum finnst það há tala, en ég verð nú bara að segja að hverju ári fylgja ný ævintýri, nýjar upplifanir og nýjir viðburðir, maður verður þroskaðri og veraldarvanari og þar að leiðandi verður lífið skemmtilegra og fjölbreyttara,, þegar koma svo tímabil sem manni leiðist eða hefur lítið að gera, getur maður rótað í minningabankanum og alltaf fundið helling af minningum og atburðum, sem maður hefur upplifað í gegnum tíðina, sem fá mann til að hlægja eða gráta, það hlýtur að gera mann ríkari og stærri með hverju árinu og því tek ég hverju ári fagnandi og nýt hverrar mínútu eins vel og ég get og geri eins mikið og ég get, til að safna fleiri minningum svo ég þurfi aldrei að sjá eftir að hafa ekki gert eitthvað sem mig langaði að gera. Á hverjum degi hérna á Ítalíu er ég að upplifa eitthvað nýtt, þó ég fari kannski ekki út fyrir hússins dyr og ligg kannski mest allann daginn í rúminu, þess á milli sem ég staulast fram á klósett, er ég samt að upplifa alveg yndislegann tíma núna, það er að finna lítið kríli hreyfa sig inn í mér, horfa á bumbuna hreyfast og láta mig dreyma um hvernig það verður að fá krílið í hendurnar,,, jiiiii hvað ég er spennt,, þetta er sko allra skemmtilegasti tími sem ég hef upplifað ( af milljónum frábærra tíma sem ég hef átt )  og get ekki beðið eftir að komast heim og njóta þessa tímabils með Guðlaugi  :D Og mér finnst persónulega að ég ætti að fá nóbelsverðlaunin fyrir hvað þetta er djúpur og fallegur texti hjá mér :haha:

Ég vona að þið hafið tekið eftir að ég er með linka á gömlu, ungu bekkjarfélaga mína hér til hliðar neðarlega, því mér finnst svo gaman að fylgjast með hvað "sperglarnir" eru að gera. En það vantar marga og ef einhver kemur inn á þetta blogg og veit síður hjá einhverjum sem vantar, þætti mér gaman að heyra um það,,,það auðveldar líka að ná í alla fyrir næsta bekkjarpartý :haha:   

Annars er allt ljómandi að frétta af okkur gellunum hér í róm, Mikið að gera í skólanum. Ég er þó búin að tilkynna leiðbeinendunum mínum og kennurum það að kveðjupartýið mitt verði 17. júni,, og þá ætlum við ekki að læra neitt, bara hafa það gott, fara út að borða, og vonandi getum við farið á einvherja strönd hér nálægt,, því ég er ekki búin að gefast upp á að reyna að fá smá brúnku á kroppinn,, þó eg sé að sjálfsögðu orðin nokkuð pirruð yfir að sjá aldrei nokkurn mun á mér,, sama hvað ég reyni að hanga á þessu blessaða sólþaki :frown:  En nú er víst löngu löngu komin háttatími og því bið ég góða nótt hafið það gott krúttin mín,,,,bestu kveðjur gústa og fallega bumbuprinsessan


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 21:02:16 / gustan

FÍNA FÍNA OG FALLEGA BUMBAN MÍN

Hér er ég komin 24 og hálfa viku og bara 15 og hálf eftir :D Er upp á sólþakinu mínu og Róm í baksýn,,,  skrollaðu niður, önnur mynd ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 21:00:10 / gustan

Sæta snúllu bumban mín

Fleiri myndir hér eða í linknum "myndir, óléttan nr. 2" hér til hliðar aðeins neðar

http://www.picturetrail.com/olettan-2


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 22:39:22 / gustan

þakkaðu bara sjálfum þér

Jæja, nú eru 3 kennsluvikur eftir af skólanum hjá mér. En ég tók þá ákvörðun fljótlega eftir páskafrí að hætta í lok júní, frekar en lok júlí, eins og upphaflega stóð til. Ástæðurnar eru nokkrar td. alveg rosaleg ólæknandi Gullaþrá ( sem er eins og heimþrá nema þá vil ég bara vera hjá Guðlaugi ) ;) svo langar mig bara að vera heima þessa mánuði sem eftir eru af meðgöngunni í faðmi Gulla og fjölskyldunnar, borða góðan og íslenskann mat og njóta þess að koma okkur fyrir, strjúka bumbunni og hafa það gott.  En þá eru líka öll skemmtilegu og áhugaverðu fögin búin. Í júlí verður afskaplega lítil kennsla og það litla sem kennt verður er “sportswear” sem ég hef afskaplega takmarkaðann áhuga á. Þannig að frekar en að hangsa hér með hangandi hendi í allt of miklum hita, ætla ég bara frekar að koma heim og hangsa yfir ykkur :haha:….. Síðustu dagar hafa þó verið alveg rosa skemmtilegir, því það gengur svo vel í skólanum og þegar það er svona stutt eftir þá finnst manni maður hafa svo mikið að gera, til að vera búin að öllu áður en maður fer heim. Hefði viljað vera búin að hanna fleiri skó og töskur og biðja kennarana mina um að búa það til fyrir mig og senda til Íslands til mín. En það er bara svo rosalega mikið að gera hjá öllum, bæði okkur og kennurunum, því nú eru 3 árs nemarnir að klára vorönnina og allt á fullu hjá þeim að klára öll verkefni, kennararnir uppteknir að hjálpa þeim, og það bitnar því miður á kennslunni hjá okkur. En það þýðir ekkert að svekkja sig yfir því, bara taka öllu með ró og vona það besta. Eg næ bara að gera það sem eg næ að gera og svo nær það ekkert lengra. ( speki dagsins í boði ágústu ) :haha:

 Ég fékk mikið hrós hjá töskukennaranum mínum í dag en hann vildi ólmur segja mér frá einum af besta skólanum á Ítalíu sem kennir fylgihluti, og sagði að ég kæmist pottþétt inn. Hann sagði mer mjög leynilega fra þessu, og passaði vel að enginn önnur í bekknum heyrði að hann væri að segja mér einni frá þessu, þannig að þetta er greinilega ekki eitthvað sem hann ráðleggur öllum nemendunum,, en ég heyrði hann líka segja við stelpu a 3ja ári að eg væri ótrulega klár og væri mjög langt komin í öllu í sambandi við töskur og hönnun, Hann sagði að ég ætti að koma og klára þetta nám sem fyrst og drífa mig svo í hinn skólann. Þar er kennt miklu meira og flóknara en í skólanum sem ég er í núna. Og ég held ég geti tekið master í fylghlutahönnun þar, sem er nú ekki leiðinlegt. Þá myndi ég tilta mig sem “tösku meistara” í símaskránni og ef ég væri ofurmenni þá væri ég “the master of bags”  Þetta er að sjálfsögðu spennandi, og ágætt að vita af þessu í framtíðinni en aðallega lít ég á þetta sem rosalega mikið hrós, svo þegar ég þakkaði honum fyrir ( hrósið) og þá sagði hann: að ég ætti bara að þakka sjálfri mér fyrir, því það væri eg sem gerði þetta allt og væri því bara mér sjálfri að þakka hihi.   Ég held samt að hann hafi mest viljað senda mig þangað strax í dag, til að losna við mig, því ég er að gera svo flókna tösku, að hvorugt okkar veit hvernig við getum klárað hana. En við erum þó komin nokkuð langt á leið og ég veit að ég geti klárað hana í næsta eða þarnæsta tíma :D 

 Mamma stefnir á að koma og “sækja “ okkur prinsessurnar :haha: upp úr 23. júní  og vera hér í nokkra daga og svo fljúgum við saman heim,,, en ekki nóg með það, því svo var ég að tala við Hildi systir í fyrradag og hún sagðist ætla að reyna að fá frí síðustu dagana í júni og ég spurði natturulega hvort það væri ekki örugglega þegar eg verð nýkomin heim, og hélt að hún ætlaði þá kannski að koma austur eða eitthvað svo við gætum dúllað okkur eitthvað saman,,, en þá sagði hún: nei, það er þegar ég kem að ná í þig…og ég bara missti andlitið ég var svo hissa. Stefnan er sem sagt að hún komi með mömmu og ég bara brosi allann hringinn við tilhugsunina um að við mæðgurnar fjórar getum spókað okkur um saman hér í sólinni áður en ég kem heim. Það verður æði. Ég held að pabbi komist ekki með, þó mér þætti það meiriháttar gaman,, en það væri þá bara plus. Að fá mömmu og Hildi er náttúrulega miklu meira en ég bjóst við, því ég hélt að Hildur yrði bara að vinna og kæmist pottþétt ekkert til mín þannig að ég varð ekkert smá hissa og mig hlakkar svo til.  :haha: Guðlaugur kemur sem sagt því miður ekkert hingað núna, :cry: því hann þarf að vera svo ótrúlega duglegur á sjónum svo hann geti keypt fínt og flott hús handa okkur litlu fjölskyldunni sinni hihi :haha: og mig hlakkar svo ólýsanlega til að koma heim og finna húsnæði og koma okkur vel fyrir og eignast heimili… Ég held ég hafi aldrei verið jafn spennt fyrir neinu í mínu lífi eins og ég er núna fyrir öllu sem er að fara að gerast á næstu mánuðum, árum og það sem eftir er…. En jæja best að kveðja áður en ég fer að grenja úr væmni ;) og eitt sniðugt í lokin,, bumban er orðin svo stór að ég get ekki séð tærnar á mér þegar ég horfi beint niður hihihih ,,og veit þar að leiðandi aldrei hvort ég sé í samstæðum sokkum, eða í hvaða skóm ég er.. hihihihiih :haha: heyrumst dúllurnar mínar og enn og aftur takk fyrir öll fallegu og skemmtilegu commentin,, og þakkiði sjálfum ykkur fyrir hvað þið eruð dugleg að kvitta :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 21:28:12 / gustan

10 fingur og 10 tær

Í dag vaknaði ég eldsnemma, en var samt of sein í skólann, eins og alltaf. Það virðist vera mér algjörlega ógerlegt að flýta mér eða mæta eitthvert á réttum tíma,,allt sem ég geri er á "slow motion", þannig að það tekur mig einn og hálfan tíma að drattast upp ur ruminu, pissa, tannbursta, fa mer morgunmat og labba í skólann ( sem er 5 mínutna gangur fyrri eðlilegt fólk) venjulega myndi þetta taka mig í allra allra mesta lagi halftíma ( með því að mála mig líka) ,, en þetta er nú víst bara partur af óléttunni minni, svo ég er ekkert að stressa mig á þessu, og leyfi mer að dunda mer við allt sem eg geri og taka því otrulega rolega,,,  mér finnst nú heldur leiðinlegra að þegar ég varð ólétt ákváðu brúnu litafrumurnar mínar að fara í frí og það er saman hvað eg ligg mikið upp á sólþaki, eg er enn eins og næpa og er ekki frá því að ég verði jafnvel bara hvítari og hvítari :(   En gaman frá því að segja að ólettufaraldurinn er ekki bara að ganga yfir á Höfn og Djúpavogi því nu er ég búin að "smita" 2 úr skólanum, eina skólasystir og einn kennarann minn :haha:  þannig að nu erum við 3 sem erum alltaf þreyttar og utan við okkur, kennarinn okkar var vön að kenna okkur 7 tíma á dag en minnkaði það niður i 3 tima a dag því hun hefur ekki orku i meira. þannig að ólettuþreyta er ekkert grín ;)

Ég fór í dag aftur í sónar, þetta átti að vera einhver súper duper útlra sónar sem sér miklu meira en venjulegur sónar en ég gat nu ekki séð að hann væri neitt betri en sónarinn á Íslandi, En það er þó alltaf gaman að fá að sjá krílið litla og eins og fyrri sónarar sýndu, þá er litla telpan alveg fullkomin með 10 tær og 10 fingur og hjarta og heila i lagi :haha: :haha:  Og nú ætla eg að tala um litla krílið sem stelpu, því nu eru bæði íslensk ljósmóðir, þýskur fæðingalæknir og ítölsk ljósmóðir búin að segja að þetta sé stelpa,, og þó að það kæmi mér ekkert á óvart þegar krílið kemur að þetta yrði strákur, leyfði eg mér nu samt að kaupa einn bleikann galla i dag og ætla nuna að tala um þetta sem litlu stelpuna okkar :D og hun er svo falleg og fullkomin. Hún liggur eiginlega i hring i kringum naflann á mer, en ég hef aldrei skilið alveg hvernig hun liggur, en alltaf grunad að höfuðið hennar væri neðarlega hægra megin, því þar kemur oft svona þrystingur eins og hun se að yta hausnum út til að láta mig vita af ser,, og ef ég legg hendina mína þar ofan á þá hef ég alltaf fundið svona eins og lítinn haus,, og þetta var alveg rétt hja mer því hausinn er þar, neðarlega hægra megin ,svo er hryggurinn fyrir neðan nafla og rassinn vinstra megin en fæturnir hennar fyrir ofan naflann og tærnar bara rétt fyrir ofan höfuðið, hun liggur sem sagt eiginlega i hring og er alveg rosa liðug og hefur það pottþétt frá mer :haha:  Jæja best að fara að sofa, þarf að mæta snemma i skolann a morgun og bua til skó,  ég skrifa meira seinna, hafið það gott og blessað, bestu kveðjur frá gellunum tveim


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5